|
|
06.09.2009 20:39:20 / hafdis53
get ekki annað en losað mig við fullan haus af orðum. Ástandið í þjóðfélaginu er ekki upp á marga fiska þessa mánuðina. Þeir sem kjörnir hafa verið til að vinna fyrir okkur eru í endalausum sandkassaleik. Hvernig væri að fara að þroskaskipta þinginu. Á leikskólum er börnum raðað á deildir eftir aldri þannig að maður getur nokkurnveginn undirbúið sig fyrir fram og vitað hvaða þroska má búast við þegar maður kemur inn á deildarnar. Á alþingi eru allir á sömu deild hver svo sem þroski þeirra er og það sem verra er, er að siðferðisþroski manna virðist líka vera á ansi breiðu róli. Ég er mjög sátt við það að vera ekki í hópi þingmanna, trúlega hefði ég ekki náð kjöri þó ég hefði boðið fram krafta mína. Þingmenn sem hafa setið lengi á þingi og verið í ríkisstjórn árum ef ekki áratugum saman eru allir með sakleysislegan geyslabaug og eru alveg hissa á því að fólki finnst að þeir hafi átt að gera eitthvað annað en að gefa fyrirtækin okkar þvers og kruss og þó aðallega öll í sömu átt, ég lít þannig á sölu þar sem viðkomandi kaupandi fær jafnframt kaupverð lánað með veði í því sem "keypt er" ekki sem sölu heldur sem gjöf. Ég mundi til dæmis alveg vera tilbúin að endurnýja bílinn minn ef Hekla lánaði mér nýja bílinn allan og nýji bíllinn væri veðið og engir gjalddagar væru á skuldabréfinu. En það er enginn hætta á að mér stæði þvílík kostaboð til boða því ég á engin hlutabréf, skuldabréf, peningabréf eða verðbréf en það virðist hafa verið það sem menn voru metnir eftir, það var ekkert spáð í það hvort einhver vitrænn bakgrunnur var fyrir öllum þessum bréfum og fyrirtækjum sem menn voru metnir eftir. En mikið lifandi og skelfing er ég fegin að vera bara einn af þessum rúmlega 300þúsundum sem þurfa bara að borga brúsann fyrir liðið. Mér líður betur í minni stöðu en ef ég væri í þeim sporum að næstum öll þjóðin þyrfti að borga mitt rugl. Svo er ég líka svo ljómandi heppin að hafa vinnu og fá útborgað mánaðarlega, vonandi breytist það ekki þó svört ský séu á himni hér í þessu fallega sveitafélgi sem ég bý í.
Jæja nú er ég aðeins léttari og ætla bara að skella mér út í heita pott og njóta lífsins.
»
30.07.2009 10:17:44 / hafdis53
Ég er að hugsa um að mæta aftur eftir langt hlé. Ég er búin að vera í sumarfríi undanfarnar vikur og nú styttist í að vinnan hefjist að nýju. Væri alveg til í að vinna minna og stefni að því eftir 11 ár  Ég rembist við að slugsa en það gengur frekar illa. Í gær kom inn stundartafla fyrir skólann í haust og ég er svo spennt að ég er komin í startholurnar, reyndar er ég svolítið svekt yfir að tímunum er dreift á tvo daga svo ég verð ansi mikið kauplaus fram í desember. Þar að auki er ansi strangt verkefni í vinnunni, ég er reyndar búin að vera að velta fyrir mér hvort ég ætti að fresta námi að sinni en það er ekki svo mikið eftir að ég tými því og þar a auki var vorönnin svo erfið að fyrst ég meikaði hana hlýt ég að geta þetta. Svo þegar þessu líkur næsta vor er ég búin að lofa sjálfri mér að ef ég fyllist þessari ofsa lærdómsþörf aftur ætla ég á föndurnámskeið og kannski líka smá dönskunám (bara fyrir amatora). Nú ætla ég að drífa mig yfir í Sóltún að bera á handriðið á pallinum því hann virðist ætla að hanga þurr í dag og sennilega er vindurinn undir 17 metrum!
»
22.11.2008 12:08:59 / hafdis53
Langt frá síðustu skýrslu. Ástæða leiti  Þykist hafa mikið að gera við að ljúka síðasta verkefni ánnarinnar. Reyndar þykist ég ekki heldur hef það. Þetta fjórða verkefni er að hluta til framhald af öðru verkefni. Það verkefni vann ég ein en það var tveggja- til þriggjamanna verkefni. Það gildir svo það sama um þetta fjórða verkefni. Um það bil 2/3 hlutar þess eru hópverkefni en 1/3 einstaklingsverkefni. Eina sem er kannski er þó jákvætt með einkunnargjöfina að hún skiptist jafnt milli þessa tveggja hluta. Verkefnaskil eru föstudaginn 28. nóvember og ég stefni að því að vera búin þá. En þetta gengur samt alltof hægt hjá mér. Hlakka til þegar þessu verkefni líkur því þá get ég farið að undirbúaa jólagjafir. Annars er alltaf gaman í vinnunni og ég er stundum dugleg að fara í Íþróttahúsið í smá púl, reyndar ekkert þessa viku og trúlega ekki næstu heldur. Síðustu daga hafa verið gestir hjá okkur, Björn Daníel og Iðunn. Drengurinn er ansi duglegur, skríður um allt og stefndur upp við allt sem hendi er næst, hvort sem það er kertastjaki, stóll eða borð. Hann gerir virkilega öflugar tilraunir til að komast upp úr göngugrindinni, hann er sem sagt líkur foreldrum sínum því bæði voru fljót til. Einar Már hefur líka verið að koma til okkar og er væntanlegur aftur fljótlega. Undanfarnar 4-6 vikur erum við búin að standa í því að fá íbúðalánasjóðslán, vá þvílíkt og annað eins vesen hef ég ALDREI lent í. Í augnablikinu er staðan sú að þinglesnu skuldabréfi (rúmur 200þús kall í stimpilgjöld og þess háttar), skilyrtu veðleyfi, undirritaðri yfirlýsingu um útborgun, afrit af kaupsamningi hafa verið lögð til hliðar þar sem ekki er hægt að afgreiða lánið vegna þess að það vanta þinglesin viðauka við kaupsamning. Við getum skotið máli okkar til stjórnar Íbúðalanasjóðs. Þetta virðist sem sagt ætla að verða sagan endalausa. Eftir helgi á að reyna að fá lögfræðing til að gera þennan viðauka, fá seljendur til að skrifa undir hann, þinglýsa honum og koma honum síðan til íbúðalanasjóðs, og svo er maður á kafi í verkefnavinnu og í 100% starfi, ætli sé hægt að fá viðbótar klukkustundir í sólarhringinn en þær þurfa þá að bætast inn í daginn á tímabilinu 9:15 til 15:00 því það er sá tími dagsins sem hægt er að standa í svona veseni. Ekki veitir af uppörvun eftir þetta svartsýnis röfl hér á undan:Vísdómsspor: Enginn ræður flóði og fjöru. Hver sú hugmynd sem lifir nógu lengi til að verða úrelt, hlýtur að fela í sér einhven sannleika.
»
26.10.2008 22:32:44 / hafdis53
Ég er ótrúlega brött þessa dagana. Margar mismunandi ástæður fyrir því: 1.Gaman í skólanum, reyndar svolítið löt að læra en það hlýtur að standa til bóta. 2. Styttist í að ég skuldi íbúðalánasjóði margar milljónir. 3. Það þýðir að búið er að taka sóltúnið út sem fullklárað (en hvenær er heimili manns fullklárað? ég bara spyr). 4. Búin að vera í alveg ótrúlaga skemmtilegum vinnubúðum með starfsystrum mínum, það verður erfitt að toppa þá ferð. 5.Bílinn minn komin á flunkunýja vetrarskó svo okkur ætti að takast í sameiningu að komast í vinnuna á réttum tíma á morgnana. 5. Og síðast en ekki síst allir tiltölulega heilsuhraustir í kringum mig. Hvað getur maður farið fram á meira. Ég var að horfa á Ólaf Stefáns hjá Evu Maríu áðan, verð að segja að mér finnst hann alveg einstakur maður, það er sko vit í honum. Af hverju verða allir að vera eins og er hamingjan folgin í því að allir verði bankamenn  Nú er ég haldin ritstíflu, fór að hugsa um allt það sem Óli sagði og er því kjaftstopp í bili. En í staðinn set ég hér inn gullkorn: Ertu ósáttur við að þurfa að leysa tiltekið vandamál? Óánægjan varir jafn lengi og þú reynir að forðast það. Ímyndaðu þér hversu ánægður þú munir verða þegar þú hefur tekist á við vandann - það er kannski eina örvunin sem þú þarft á að halda.
»
30.09.2008 19:18:46 / hafdis53
  Í morgun þurfti ég að skafa framrúðuna áður en ég fór af stað í vinnuna. Sem betur fer er ég svo skipulögð og snyrtileg að skafan var á vísum stað Ég er að fara á Akureyri á fimmtudag´til að sækja kennslustundir frá 12:30 til 18:50 á fimmtudag og frá 8:10-12 á föstudag. Þar sem ég er orðin svo öldruð og löt ákvað ég að fljúga norður í stað þess að fara akandi. Ég held að Skódinn sé hálf svektur, hann tekur þetta þó ekki mjög nærri sér þar sem honum er orðið svo illt í afturfótunum af því skórnir hans eru orðnir svo slitnir  og ég er ekki alveg tilbúin með þúsundkallana til að kaupa nýja vetrarskó. Ég frétti það að Ecco kuldaskór nr. 22 kostuðu 11000kall svo það er kannski ekki mikið þó fjögur dekk kosti 50000kall. Ég verð að viðurkenna að ég er farin að hafa áhyggjur af efnahagsástandinu. Þetta er nú eiginlega hætt að vera fyndið. Í dag er danska krónar skriðin yfir 20 kallinn, og ég sem er komin í áskrift með ferðir til Köben. En ég ásamt öðrum íslendingum er nú aftur orðin bankaeigandi svo kannski maður fari bara að fá arð eða eitthvað svoleiðis. Stéttarfélagið mitt er ekki farið að semja við sveitafélögin en eins og horfurnar eru í dag þá er tæplega neitt bjart framundan í þessum málum og sennilega gæti allt farið á versta veg, en nú er ég farin að vera svartsýn og leiðinleg svo það er best að setja stóran punkt hér og skella sér í lærdóminn. Gullkorn: Bros er beygja sem getur rétt flesta hluti af   
»
19.09.2008 22:33:16 / hafdis53
jæja þá er maður kominn heim í rigninguna og rokið!! Ég er að velta því fyrir mér hvort þetta séu einhver teikn, nú þegar við fórum í okkar 6 heimsókn til Köben á 3 árum gerði ég mér grein fyrir því að við höfum alltaf (ef minnið er ekki að svíkja mig) þá höfum við keyrt til Keflavíkur í rigningu eða roki nema hvortveggja sé og Ísland hefur alltaf tekið á ´móti okkur með hrissingi og í flest skiptin mikilli rigningu  En nú er það sem sagt alvaran sem er framundan. verkefni, verkefni og verkefni sem þarf að ljúka sem fyrst. Ég játa það fúslega að ég var ekki mjög dugleg að læra í Köben, reyndar var ég líka mjög hógvær í innkaupum nema bara handa sjálfri mér, húsbóndinn fékk t.d. nokkur por af sokkum og ekkert annað, barnabörnin fengu lítið og aðrir ekkert. Ég er hins vegar farin að hugsa hvernig ég get fjármagnað næstu ferð sem verður vonandi í febrúar n.k.:þ Jæja nú læt ég staðar numið en munið að lífið er óskrifuð bók og aldrei hægt að gera ráð fyrir því að því verði ekki bara lokið á morgun.
»
02.09.2008 19:26:46 / hafdis53
Þá er ég byrjuð í skólanum. Verð þó að lýsa yfir ógleði yfir því hve ég kem götótt út úr stundaskrá staðlotu. Ég var í tímum allan sunnudaginn, fyrir hádegi á mánudag og verð svo fyrrihluta dags á morgun. Að lokum verð ég svo í tímum frá 8:10 til 17:50 næsta sunnudag. Ég ætla að fara heim á morgun, vinna fimmtudag og föstudag, skutla eiginmanninum í flug aðfararnótt föstudags, síðan skuttlast á Ak á laugardag og til baka aftur eftir kennslu á sunnudag, síðan er það Keflavík aðfararnótt mánudags og flug til Köben á mánudagsmorgun. Reikna með að sofna í flugvélinni nema ég verði svo upptendruð að Óli lokbrá verði víðs fjarri  Ég er búin að hvíla mig vel hér í Tröllagili, húsráðandinn farinn að heiman og eins og allir vita þá fara mýsnar á kreik þegar kötturinn er farinn að heiman. Ég er m.a. búin að klára pússlið sem ég stalst í í síðustu heimsókn og veit þess vegna ekki alveg hvað ég geri í kvöld. Kannski bara leggjast í dvd gláp. Jæja þá er að hætta þessu bulli og koma sér að því að gera eitthvað vitrænt. Munið svo endilega að njóta hvers dags.
»
24.07.2008 16:50:20 / hafdis53
»
01.07.2008 20:13:14 / hafdis53
Ég er búin að setja mér það markmið að skrifa á þessa síðu ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði, ætli mér takist að standa við það?
Það er nú ekki margt gáfulegt í fréttum þessa dagana. Það telst helst til tíðinda að enn og aftur hefur úttektinni á Hvanneyri verið frestað, það er alltaf einhverjir smá hlutir sem eru eftir svo það er víst bara eins gott fyrir mig að draga andann að mér og anda rólega og láta ekki stressið og hamaganginn ná tökum á mér.
Ég er búin að borga skólagjaldið í HA og nú er bara að láta sér hlakka til að byrja að læra aftur og svo verð ég að muna að þegar og ef ég lendi upp fyrir haus að ég kom mér í þetta sjálf og verð þess vegna að koma mér úr því aftur hvort sem það verður með 30 eða 60 eininga námi.
Það styttist í 2ja viknalokun í leikskólanum. Ég ætla að reyna að njóta þeirra vikna og jafnvel ferðast svolítið með Valgerði. Það ætti að verða gaman hjá okkur að kíkja til Hríseyjar, Húsavíkur, Kópaskers, Þórshafnar og í Jólahúsið (ég elska þann stað).
Ekki meira í bili nema ekki skella hurðinni á eftir ykkur, það er alveg jafn gott að halla henni varlega.
»
14.06.2008 22:23:26 / hafdis53
jæja góðir hálsar, það er spurning hvort ég er hætt að blogga eður ei  Allavega er langt síðan síðast og þið getið trúað því að ýmislegt hefur á daga mína drifið síðan þá. 1. ég er ekki flutt en vonandi stendur það til innan þriggja mánaða. 2. búin að kaupa flugmiða til Köben í september og fer þangað þá hvað sem einhverjir karlar úti í heimi eru að röfla. 3. búin að fara í 1. árs afmæli til Patreks á Akureyri (uff og hann er nýfæddur  ) 4. búin að fá bréf frá HA að ég komist inn í framhaldsnám 5. búin að fá ömmukút í fóstur, reyndar fylgir mamman með en hún stundar sumarvinnu hér um slóðir og þar sem amman er í sinni vinnu er það afinn sem er dagpabbi (dagafi?) reyndar er sá stutti ansi duglegur að hjálpa til við hin ýmsu bústörf. 6. litla barnið mitt er farið til London, hún segir flutt en við gamla settið segjum að hún sé þar í löngu sumarfríi  7. ég er alltaf að verða sannfærðari og sannfærðari á því að launa-vinnan mín sé sú skemmtilegasta sem ég hef verið í, en verð samt að viðurkenna að ég bíð spennt eftir nýjum samningum aðallega að sjá hvort mitt stéttarfélag getur gert betri samnining en er núna. 8. nenni ekki að telja meira upp því nú bíður potturinn eftir að ég setjist ofaní hann og láti heitt vatnið gæla við stífu axlarvöðvana mína. Heyrumst síðar bara munið að njóta birtunnar því skammt er þangað til daginn fer aftur að stytta.
»
06.05.2008 21:40:21 / hafdis53
 þeir eiga afmæli í dag,  þeir eiga afmæli í dag,  þeir Siggi og Einar eiga afmæli í daga  þeir eiga afmæli í dag.  Ótrúlegt en satt en þessir yndælu synir mínir eiga 27 ára afmæli í dag, Tíminn líður ótrúlega hratt, það er ekki svo langt síðan þeir voru liggjandi í sitt hvorri vöggunni og annar fékk tvöfalt morgunbað á meðan hinn beið rólegur eftir að losna við blautu bleiuna sína  . Já mamma þeirra var stundum svolítið rugluð í kollinum þá eins og hún er skýr í dag  Annars er ekkert að frétta héðan úr sveitinni. Bóndinn hverfur flest kvöld í byggingarvinnuna sína og ég lufsast um ein á heimilinu. Reyni annað slagið að koma að gagni og stundum tekst það og stundum ekki. Núna er ég t.d. hálf sofandi og bíð eftir því að klukkan verði nógu mikið svo það sé tímabært að leggjast á koddann og hverfa inn í draumalandið. En gullkornið kemur samt og í tilefni dagsins er það málsháttur dagsins í afmælisdagabókinni hennar mömmu: Ei skal letja góðan gest, er ganga vill!!!
»
21.04.2008 20:03:54 / hafdis53
Það er helst í fréttum að rétt áðan fæddist drengur á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi. Þessi litli snáði er svo ótrúlega heppinn að hann á mig sem föðurömmu. Reyndar á hann ýmsa aðra góða að. Eftir myndinni sem við fengum senda er þetta myndar-snáði og greinilegt að hann er með munninn minn, þ.e.a.s. galopinn og þegar byrjaður að segja sína skoðun. Enn er þyngd og lengd óljós (allavega hafa ekki borist fréttir ennþá) en ég á ekki vona á öðru en að hann sé stór og stæðilegur  Nú fréttir voru að berast rétt í þessu, 14 merkur 53 cm. sem sagt ansi líkur pabba sínum að fæðingarþyng (en eins og flestir vita var hann léttari tvíburinn). Ég læt þetta nægja í bili enda nóg að gera í símanum í augnablikinu. Málsháttur dagsins 21. apríl í afmælisdagabókinni hennar mömmu er: Þeir mega hafa fattar fætur, sem fallegar eiga dætur.
»
15.04.2008 19:58:30 / hafdis53
Jæja þá er að vita hvort ég nenni þessu bloggi. Netið er reyndar búið að vera ömurlegt  hjá mér frá því um jól. Ég hugsa um það oft á dag að nú gefist ég bara upp og segi upp tengingunni. Get örugglega notað þessar krónur sem þetta bull kostar í eitthvað gáfulegra, eins og t.d. danskar krónur  . Má hins vegar til með að deila reynslu dagsins með acernum mínum. Ég fór sem sagt til ofnæmis og asmalæknisins í dag. Það kom nú allt ágætt út úr því annað en að ég er með asma en ofnæmið fyrir kisum er farið til föðurhúsanna. Frjó-ofnæmið er hins vegar enn til staðar. En þetta er nú ekki fréttin heldur það að ég var að segjast taka Spírólinu inn daglega. Nú þá sagði hinn virti doktor að reyndar væri Spírólína mikill ofnæmisvaldur  . Og ég sem er búin að setja helminginn af starfsfólkinu í leikskólanum á þessar undra-verðu-hressingar-bætiefna-pillur. Vonandi fer enginn í mál við mig, en ég er ekki með bráðaofnæmi fyrir þessum undrapillum því þá væri ég ekki til frásagnar. Annað var nú ekki í fréttum í dag en kannski heyrist frá mér aftur síðar. Vera má að þér finnist þú vita hvað býr þér í hug en veistu líka hvað býr í hjarta þínu?
»
27.02.2008 22:45:30 / hafdis53
Jæja þá er að taka það með bjartsýninni.  Netið hjá mér er vægast sagt búið að vera ömurlegt frá því fyrir áramót. Oftar en ekki kemst ég ekki á netið þegar ég er í skapi eða stuði til þess. Nú og svo þegar ég mætti á svæðið í Köben náði ég ekki tengingu í íbúðinni. En dvölin þar var hins vegar mjög ljúf og góð. Við skötuhjúin röltum út um allar trissur bæði innan hús (í verslunarmiðstöðum) og utan. Fengum gott veður, sluppum við nokkrar lægðir sem heimsóttu Ísland. Höfum bara fengið þær sömu og þið upp á síðkastið  . Ég var að velta því fyrir mér í morgun þegar ég var á leiðinni í vinnuna, og vissi ekki hvort ég var að fara eða koma vegna þess hvað skygnið var ekkert, hvort ég gæti ekki fengið samningnum mínum í vinnunni breytt. Ég gæti t.d. alveg sætt mig við styttri vinnutíma, frí þegar það er blint og ég tala nú ekki um þegar gjár myndast í þjóðveginn, ég gæti líka alveg samþykkt að fá nokkra tugi milljóna fyrir að vera svo væn að ráða mig í vinnu, og svo mætti alveg senda björgunarsveitina með nokkra skemmtilega krakka heim til mín svo ég gæti leikið og lært með þeim hér við eldhúsborðið. Nú en svo reyni ég að blása á veðurþunglyndið og segi sjálfri mér að nú sé febrúar að verða búin og í mars séu bara 31 dagur, nú og apríl verði trúlega betri en mars svo komi maí og þá hljóti nú þessi endalausa snjókoma og skafrenningur að vera farin út í hafsauga. Nú ef þunglyndið er mikið þá hugsa ég um alla rigninguna og rokið sem geti herjað á okkur og mynnist þess þegar ég lenti í svaðilförum í endaðan apríl á Snæfellsnesi fyrir örfáum árum. En svo nær skynsemin völdum, hendir svartsýninni út um gluggan og bjartsýnin tekur völdin. Sólin er farin að hækka á lofti og allt er uppávið. Áður en ég missi mig endanlega hér í kvöld ætla ég að setja inn málshátt dagsins í afmælisdagabókinni hennar mömmu. Höfuðið verður fótum falli að varna! .
»
03.02.2008 22:56:06 / hafdis53
Jæja ekki er ein báran stök. Ég náði mér sem sagt í fyrstu pestina á nýja starfsferlinum mínum. Og eins og við er að búast þegar ég er annars vegar var það tekið með stæl. Ég var sem sagt veik og marga daga. Öj og föj Komst ekki í vinnu fyrr en á fimmtudag og þá eins og draugur upp úr öðrum draug. Ég er enn í hóstaköstum og nú líður mér eins og hálsinn sé fullur af munnangri. Á morgun ætla ég að hringja í lækninn og væla í honum, var reyndar hjá honum á miðvikudaginn og fékk púst og slímlosandi töflur. Hann sagði að þetta væri veirusýking og ég þyrfti að vera þolinmóð og gefa þessu tíma. Ég tel mig vera búin að gefa þessu ansi langan tíma og nenni ekki meiru Nú styttist all verulega í Köben. Förum á miðvikudagsmorgun og enn erum við ekki alveg búin að ákveða hvort við treystum á veðurguðina. Þeir virðast vera eitthvað sérstaklega fúlir þessar vikurnar. Þegar ég fór í Bn seinnipartinn í dag slapp ég með lagni í gegnum skaflinn fyrir ofan brekkuna. Já eins gott að vera góður ökumaður Nú þegar ég kom til baka rúmlega hálftíma síðar var bóndinn búin að standa í ströngu við að draga fasta bíla úr skaflinum. Samkvæmt áreiðanlegum fréttum voru það 12 bílar. Nú og svo komu gestir áðan og farþeginn hótaði að kaupa sér jeppa því þessir skaflar væru orðnir óþolandi. Ég er nú svo sem alveg sammála því og eins víst að ég kemst ekki í vinnuna í fyrramálið án utanaðkomandi aðstoðar. Jæja næst þegar ég set færslu inn á þessa síðu sit ég í íbúð á fjórðu hæð í Hans Hedtoftsgade, það er að segja ef nettengingin þar er ekki biluð Gullkornin eru ómissandi: Allt er í einhverju fólgið. Tignaðu ekki leiðarvísinn, heldur áfangastaðinn. Glópar einir verja lífinu til þess að gera glópa úr öðru fólki.
»
Síður: 1 2 3 ... 23
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 38731
|